Sjálflýsandi nætursnuð frá Bibs í Sage og Cloud.
Sjálflýsandi nætur snuð frá Bibs í Sage og Cloud - Stærð 1.
Bibs nætursnuð í Sage og Cloud. Tvö í pakka - Stærð 2.
Sjálflýsandi Bibs snuð í litunum Sage og Cloud. Tvö í pakka - Stærð 3.

Bibs Colour Snuð 2pk | Sage Night & Cloud Night | Stærð 1

Regular price 1.390 kr
/
Virðisaukaskattur innifallin.
Sendingarkostnaður reiknast í næstu skrefum.

Sjálflýsandi nætursnuðin frá Bibs eru hönnuð og framleidd í Danmörku. Snuðin lýsa í myrkri og auðvelda foreldrum að finna snuðið á nóttunni. Snuðin veita barninu einnig öryggi og huggun.

Skjöldurinn á snuðinu er hannaður þannig að hann snertir húð takmarkað sem kemur í veg fyrir að viðkvæm húðin ertist.
Túttan er hringlótt sem á að auka líkindi við brjóstagjöf og veita barninu huggun.
Litur hér er Sage & Cloud.



  • Pakkinn inniheldur 2 snuð 
  • Efni: Náttúrulegt gúmmí latex 
  • Snuðin koma í 2 stærðum: stærð 1 (0-6 mánaða) og stærð 2 (6+ mánaða) 
  • Án BPS, PVS og phthalates.
  • Vottun: Evrópustaðall EN1400 


 

Fyrir fyrstu notkun: Ráðlagt er að dauðhreinsa snuðin fyrir fyrstu notkun. 

Þvottaleiðbeiningar: Mælt er með því að sjóða vatn og hella því í skál, setja snuðin í skálina og bíða í 5 mínútur. Athugið að vatn getur komist inn í túttuna við þvott. Mikilvægt er að kreista vatnið úr túttunni eftir á til að ganga úr skugga um að ekkert vatn sé í túttunni fyrir notkun. Ekki er mælt með því að sjóða snuðin í potti til þess að þrífa þau né setja þau í uppþvottavél. 

Athugið að mælt er með því að skipta snuðunum út eftir 4-6 vikna notkun.