Sage Sett úr lífrænni bómull | 1-3 ára
Regular price 6.990 krSendingarkostnaður reiknast í næstu skrefum.
Fallegt unisex sett úr lífrænni bómull. Settið kemur í poka úr sama efni og lit og er því fullkomið sem gjöf. Hér í fallegum grænum sage lit. hægt að nota bæði sem náttföt sem og þæginleg hversdagsföt
Efni:
95% lífrænt vottaður bómull
5% elastín
Lífrænt litarefni
Þvottaleiðbeiningar: Þvo við lágt hitastig á lágum snúning. Ekki er mælt með því að nota bleikingarefni.
* Hafðu vinsamlegast í huga að myndir geta verið eilítið frábrugðnar hvað lit varðar vegna lýsingarinnar við myndatöku.
susukoshi ススコシ er innblásið af japanskri hönnun og arkitektúr. Markmið vörumerkisins er að einblína á mikilvægi þess að halda siðferðilegri og sjálfbærri framleiðslu og á sama tíma halda henni í hógværð.
Fern Tencel Náttgalli | 12 - 18 mán
Regular price 4.980 krSendingarkostnaður reiknast í næstu skrefum.
Klassískur og þægilegur kynjahlutlaus svefngalli. Gallinn er úr mjúku tencel- og lífrænu bómullarefni sem dregur úr ertingu fyrir börn með viðkvæma húð. Gallinn er einstaklega hentugur í notkun með tvöföldum rennulás til þess að auðvelda bleyjuskipti og undirbúning fyrir háttatímann. Fyrir stærðir upp að 12 mánaða eru einnig fellingar á hand- og fótfestingum til þess að halda á þeim litlu hita og koma í veg fyrir að þau klóri sig í framan. Hér í fallegum myntugrænum lit með hvítu mynstri.
Eiginleikar
- Efnið er alveg sérstaklega mjúkt viðkomu sem passar upp á viðkvæma húð barnsins
- TENCELTM efnið er 100% lífbrjótanlegt (e. biodegradable) því ákaflega milt við umhverfið
- Engir merkimiðar eru á gallanum til að tryggja þægindi fyrir barnið
- Lycocell Tencell efnið andar sérstaklega vel til að tryggja að barninu verði ekki of heitt
- Fellingar á hand- og fóstfestingum fyrir stærðir upp að 12 mánaða
Efni:
66% Tencel Lyocell
28% organic cotton
6% spandex
Þvottaleiðbeiningar: Mildur vélarþvottur. Þurrkað á lágum hita eða með því að hengja upp til þerris.
Moomin Terrazzo Grænn Náttgalli | Stærðir 86 & 92
Regular price 4.650 krSendingarkostnaður reiknast í næstu skrefum.
Múmín náttgalli í fallegum hlutlausum grænum lit skreyttur myndum af nokkrum af hinum ástsælustu persónum Múmíndals. Langur rennilás frá fæti upp að háls er á gallanum til að auðvelda bleyjuskipti. Náttgallinn er úr mjúkri bómullarblöndu.
- Langur rennilás til að auðvelda fata-og bleyjuskipti
- Öryggisfóðring yfir rennilás til að vernda höku barnsins
Efni:
95% Bómull
5% Teygjanlegt efni (e. elastane)
Þvottaleiðbeiningar: Þvo á röngunni með svipuðum lit á 40°C. Ekki setja í þurrkara. Mælt er með því að strauja gallann á röngunni.